Starfsgreinasamband Íslands hefur kallað eftir því að ríki, sveitarfélög, verslun og þjónustuaðilar taki höndum saman um verðstöðugleika og skuldbindi sig til að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan 2,5%.
Borgarbyggð tekur undir þau markmið og hefur byggðarráð samþykkt að stefnt verði að því að halda almennum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins innan þess ramma árið 2027, að því gefnu að ríkisvaldið og stofnanir þess sýni sambærilegt aðhald.
Með hliðsjón af nýsamþykktri ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september samþykkti byggðarráð að við gerð fjárhagsáætlunar Borgarbyggðar fyrir árið 2027 verði almennum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins haldið innan 2,5% ramma, að því gefnu að ríkið geri slíkt hið sama.
Með þessu vill Borgarbyggð leggja sitt af mörkum til sameiginlegs átaks gegn verðbólgu og stuðla að auknum efnahagslegum stöðugleika. Jafnframt áréttar byggðarráð mikilvægi þess að ríkið tryggi sveitarfélögum fulla og raunhæfa fjármögnun lögbundinna verkefna og þeirra nýju skyldna sem þeim eru falin.
Við gerð fjárhagsáætlunar 2027 verður því miðað við framangreint 2,5% viðmið og hefur fjármálastjóra og sviðsstjórum verið falið að haga áframhaldandi vinnu við áætlunina í samræmi við það.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
