Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2026
Borgarbyggð hefur samið við endurvinnslufyrirtækið Hringrás ehf. um söfnun ákveðinna úrgangsflokka í dreifbýli haustið 2026.
Í samkomulaginu felst að Hringrás mun sækja heim eftirfarandi flokka íbúum að kostnaðarlausu.
- Bílflök og annað almennt brotajárn
- Ryðfrítt stál og ál
- Rafgeyma
- Rafmótora
- Hjólbarða
Fyrirkomulagið er þannig að íbúar safna úrgangsefni saman á einn stað við heimili sín þangað sem Hringrás sækir efnið. Hringrás tekur á móti pöntunum í síma 5501900 eða afgreidsla@hringras.is
Við pöntun þarf að koma fram:
- Nafn, sími og netfang þess sem pantar
- Nákvæm staðsetning (bær og svæði)
- Áætlað magn
Frekari upplýsingar veitir Hafþór Ægir Þórsson hjá Hringrás í síma 6608916
Frestur til að senda pöntun er til 1. nóvember 2026
Umhverfisfultrúi Borgarbyggðar
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
