Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna.
Í vikunni gefst íbúum kostur á að kynna sér fjölbreytta hreyfingu og íþróttastarf í sveitarfélaginu.
Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi og þátttaka er öllum opin.
Dagskrá vikunnar er meðal annars:
- Frítt í opna tíma í íþróttamiðstöðinni
- Opnar æfingar hjá barna- og ungmennastarfi aðildarfélaga UMSB
- Vinavika hjá Metabolic
- Frí Gusa hjá Völvusaunagusu fyrir 60+
- Göngufótbolti
- Virkniþing Borgarbyggðar – Kynningar á fjölbreyttri hreyfingu og íþróttastarfi í héraðinu
Við hvetjum alla til að nýta tækifærið, mæta á viðburði vikunnar, prófa nýja hreyfingu og njóta þess að vera virk í góðum félagsskap.
Allir viðburðir vikunnar eru auglýstir á Facebook-síðu Íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarbyggð
Taktu þátt í Íþróttaviku Evrópu og finndu þína hreyfingu!
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
