Endurbótum á búningsklefum í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi er nú lokið og hafa bæði karla- og kvennaklefar verið opnaðir á ný eftir framkvæmdir síðustu mánaða.
Framkvæmdir við karlaklefann hófust um miðjan nóvember 2025. Þar var rýmið stækkað, skipulagi breytt og nýjum sturtum bætt við til að bæta aðstöðu gesta.
Um miðjan janúar 2026 var kvennaklefanum einnig lokað vegna endurbóta. Í þeim framkvæmdum var meðal annars farið í endurnýjun á sturtum og salernisaðstöðu.
Með breytingunum hefur aðstaða í íþróttamiðstöðinni tekið verulegum framförum og eru klefarnir nú rúmbetri, nútímalegri og einstaklega glæsilegir.
Í fréttinni má einnig sjá myndir af hönnun nýrra vatnsrennibrauta sem fyrirhugað er að setja upp við sundlaugina í Borgarnesi.
Fyrirtækið Á. Óskarsson er með verkið og er áætlað að framkvæmdir hefjist um miðjan maí. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin taki um 5–6 vikur.
Íbúar og gestir eru hvattir til að kíkja í sund og nýta sér nýju aðstöðuna.

Karlaklefinn hefur verið stækkaður



