Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin í starf skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar.
Ásgerður er menntaður byggingarfræðingur frá Horsens í Danmörku og er að ljúka meistaragráðu í skipulagsfræði frá landbúnaðarháskóla Íslands. Ásgerður er með góða reynslu af störfum tengdum skipulagsmálum og opinberri stjórnsýslu. Hún hefur tekið þátt í og átt frumkvæði að innleiðingu verkefna tengt skipulagsmálum. Hún hefur t.a.m komið að endurskoðun aðalskipulags, nýjum deiliskipulögum og breytingum á deiliskipulögum, útgáfu framkvæmdarleyfa og sinnt grenndarkynningum byggingarleyfa.
Ásgerður mun taka til starfa sem skipulagsfulltrúi 1. október nk. og tekur við embættinu af Drífu Gústafsdóttur sem gegnt hefur starfinu frá janúar 2021 og þökkum við henni fyrir vel unnin störf.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
