Sólrún Halla Bjarnadóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi.
Sólrún Halla er með M.Ed í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands, B.Ed í íþrótta- og heilsufræðum og B.Ed í leikskólakennarafræðum.
Auk þess hefur hún lokið viðbótardiplómu á meistarastigi í menntastjórnun og matsfræði og aðra diplómu á meistarastigi í hagnýtri stærðfræði í náms- og kennslufræðum.
Einnig er hún með góða reynslu af stjórnun og kennslu í grunnskóla. Hún hefur starfað sem deildarstjóri við Grunnskóla Borgarfjarðar frá 2017. Á árunum 2013-2017 starfaði hún sem umsjónarkennari og íþróttakennari við sama skóla. Á árunum 2004-2013 starfaði Sólrún sem leikskólakennari og deildarstjóri á leikskólanum Andabæ.
Við bjóðum Sólrúnu Höllu velkomna til starfa við Grunnskólann í Borgarnesi. Sólrún mun formlega hefja störf við skólann frá og með 1. ágúst 2026.
Hagvangur hafði umsjón með ráðningarferlinu ásamt mannauðsstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
