26. maí, 2026
Fréttir

Vegna vinnu og viðhalds í aðveitustöð á Vatnshömrum verða tímabundnar rafmagnstruflanir á eftirfarandi svæðum dagana 26. og 27. maí 2026.

Hvanneyri – 26. maí

Rafmagnslaust verður á Hvanneyri frá kl. 22:00 til kl. 23:00 þriðjudaginn 26. maí.

Hvanneyri – 27. maí

Rafmagnslaust verður á Hvanneyri frá kl. 22:00 til kl. 23:00 miðvikudaginn 27. maí.

Skorradalur – 27. maí

Rafmagnslaust verður í Skorradal frá kl. 10:00 til kl. 15:00 miðvikudaginn 27. maí.

Borgarbyggð – 29. maí
Aðfaranótt föstudagsins 29. maí n.k. hyggst Landsnet fara í nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir í tengivirki við sameiginlega aðveitustöð Landsnets og Rarik í Vatnshömrum.
Af þessum sökum mun verða rafmagnslaust á stóru svæði í u.þ.b. 2 klst., eða frá kl. 00:10-02:10 þessa nótt.


Hér er að finna góð ráð, m.a. varðandi það hvernig draga má úr líkum á tjóni vegna rafmagnsleysis.

Athygli er vakin á því að mögulega getur rafmagn komið á í stuttan tíma meðan á framkvæmdum stendur vegna prófana.

Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af áhrifasvæðum má finna á hér

Meðfylgjandi er kort af því svæði sem um ræðir og verður rafmagnslaust í u.þ.b. 2 klst þann 29. maí nk.

 

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.