Íþróttafólkið Sindri Karl og Kristín Þórhallsdóttir náðu framúrskarandi árangri í sínum greinum um síðastliðna helgi.
Sindri Karl varð þrefaldur Íslandsmeistari á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum fyrir 15–22 ára, sem fram fór á Akureyri. Sindri keppti í flokki 16–17 ára og sigraði örugglega í 800, 1.500 og 3.000 metra hlaupum.
Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona frá Laugalandi í Borgarfirði, setti tvö heimsmet á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í Litáen um helgina. Hún setti heimsmet bæði í samanlögðu og í réttstöðulyftu í sínum flokki.
Kristín, sem er ríkjandi Evrópumeistari, keppti í -84 kílóa flokki í M1-öldungaflokki. Auk heimsmeta vann hún til bronsverðlauna í hnébeygju og hafnaði í 6. sæti af 22 keppendum í sínum flokki.
Borgarbyggð óskar þeim báðum til hamingju með framúrskarandi árangur.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
