18. júní, 2026
Fréttir

Soffía Björg Óðinsdóttir hefur verið útnefnd listamanneskja Borgarbyggðar árið 2026. Jovana Pavlovic, forseti sveitarstjórnar, tilkynnti útnefninguna við hátíðlega athöfn á 17. júní í Skallagrímsgarði, þar sem framlag Soffíu til menningar og lista var sérstaklega heiðrað.

,,Listir og menning eru meðal mikilvægustu verðmæta hvers samfélags. Þær hjálpa okkur að skilja okkur sjálf, segja sögur okkar, varðveita minningar og skapa nýjar framtíðarsýnir. Á tímum þar sem hraði, tækni og hagkvæmni virðast stundum ráða ferðinni er sérstaklega mikilvægt að gleyma ekki því sem nærir andann: tónlistinni, myndlistinni, bókmenntunum og allri þeirri mannlegu sköpun sem gefur lífinu dýpri merkingu. Menning verður ekki til af sjálfu sér. Hún verður til vegna fólks sem leggur ástríðu sína, tíma og hæfileika í að skapa, flytja og miðla. Fólks sem auðgar samfélagið sitt með verkum sínum og gerir það að betri stað til að búa á.“ sagði Jovana meðal annars í ræðu sinni

Soffía Björg hefur um árabil verið áberandi í íslensku tónlistarlífi sem söngkona, gítarleikari, lagahöfundur og tónskáld. Hún lauk BA-prófi í klassískum tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og hefur einnig stundað söngnám við FÍH og Söngskólann í Reykjavík.

Á ferli sínum hefur Soffía gefið út fjölmörg lög og hljómplötur líkt og, Brother Grass, Jól og The Company You Keep. Þá hafa lög á borð við Dreamcatcher, Redwing og Yfir Regnbogabrúnni notið athygli á síðustu árum.

Soffía Björg hefur komið fram á helstu tónlistarhátíðum landsins, meðal annars á Iceland Airwaves, Bræðslunni, Aldrei fór ég suður, Reykjavík Folk Festival og Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Einnig hefur hún kynnt íslenska tónlist erlendis á viðburðum á borð við Eurosonic í Hollandi, Nordklang í Sviss og MusExpo í Los Angeles.

Soffía hefur auk þess samið tónlist fyrir leikhús, þar á meðal barnaleikritið Tindátarnir, samið kórverk fyrir Dómkórinn í Reykjavík og unnið fjölmargar útsetningar fyrir aðra flytjendur. Hún hefur einnig sungið með mörgum af fremstu tónlistarmönnum landsins.

Á þessu ári hélt Soffía málverkasýninguna Jaðarsjón í Safnahúsi Borgarfjarðar og fram undan eru meðal annars tónleikaverkefni með KALEO og vinum á Þingvöllum.

Við útnefninguna var sérstaklega bent á þá miklu breidd sem einkennir listasköpun Soffíu Bjargar. Ferill hennar spannar tónlist, tónsmíðar og myndlist og endurspeglar þann sköpunarkraft sem hefur einkennt störf hennar í gegnum árin.

Borgarbyggð óskar Soffíu Björgu Óðinsdóttur innilega til hamingju með nafnbótina listamanneskja Borgarbyggðar 2026 og þakkar henni fyrir framúrskarandi framlag til menningar og lista í samfélaginu.

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.