25. mars, 2026
Fréttir

Spáð er suðaustan roki og stórhríð á morgun fimmtudag 26.mars og búið að gefa út appelsínugula viðvörun við Faxaflóa frá kl 07-13. Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s með hríð, skafrenning, slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður verður á Kjalarnesi og veginum undir Hafnarfjalli. Vegum þar verður lokað frá klukkan 04:00 í nótt til klukkan 13:00 á morgun.

Búast má við samgöngu truflunum og röskun á þjónustu meðan veðrið gengur yfir. Íbúar eru hvattir til að fara varlega, vera ekki á ferðinni að óþörfu og fyrst og fremst ekki fara út á vanbúnum bílum ásamt því að tryggja að lausamunir séu kyrfilega festir niður.

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.