2. mars, 2026
Fréttir

Framboð og meðmæli – mikilvægar dagsetningar og upplýsingar 

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 16. maí 2026.
Öll framboð eru hvött til að nýta rafrænt meðmælendakerfi til söfnunar meðmæla, sem opnar 3. mars.
Nánari upplýsingar um kerfið má finna á vef Landskjörstjórnar: 
https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026/medmaelasoefnun. 

Umsóknarfrestur framboða er til og með 10. apríl 2026 kl. 12:00. Gætið þess að skila inn öllum nauðsynlegum gögnum innan tilskilins frests. 

Stofnandi meðmælasöfnunarinnar þarf að eiga lögheimili í sveitarfélaginu.  

Þar sem ekki búið er að sameina sveitarfélögin, og meðmæli eru tengd lögheimili þarf að stofna meðmælasöfnun í hvoru sveitarfélagi fyrir sig. Það er mikilvægt að hafa í huga að aðeins þeir sem hafa lögheimili í Skorradal geta mælt með framboði fyrir Skorradal, á sama hátt og þeir sem hafa lögheimili í Borgarbyggð geta mælt með lista í Borgarbyggð.  

Ef spurningar vakna eða þörf er á frekari leiðbeiningum, vinsamlegast hafið samband við yfirkjörstjórn á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eða skorradalur@skorradalur.is.  

Nánari upplýsingar um skil á framboðum verða auglýstar síðar. 

 

Tengdar fréttir

6. júní, 2023
Fréttir

241. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Fundarboð

6. júní, 2023
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.