Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB
Við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl.
Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst, Þverárhlíð.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.
Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum á Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar. Í ár verður kjörfundur í Kleppjárnsreykjakjördeild í nýja hluta grunnskólans. Best er þá að leggja í bílastæðin við Borgarfjarðarbraut en keyra ekki inn í portið. Hurðin sem gengið er um verður merkt.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00
Skorradalskjördeild í Laugarbúð Skorradal
Þar kjósa íbúar Skorradals.
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.
Kjörskrá
Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi í afgreiðslu ráðhúss Borgarbyggðar Digranesgötu 2, alla virka daga á opnunartíma.
Talning
Talning atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni fer fram í Menntaskóla Borgarfjarðar Borgarbraut 54.
Opið er fyrir uppflettingar í kjörskrá, sjá hér.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands kosning.is geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar. Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi.
Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
