Í síðustu viku sendi byggingafulltrúi bréf til fasteignaeigenda í Borgarbyggð þar sem þeim var bent á að yfirfara skráningu á fasteign sinni en um 360 bréf voru send.
Þau atriði sem nefnd eru í bréfinu og fasteignaeigendur eru beðnir að skoða eru:
• Ekki er rétt skráð byggingarstig.
• Ekki er skráð lokaúttekt.
• Byggt er án heimilda.
• Stærð mannvirkis er ekki í samræmi við skráningu.
Fletta má upp skráningu fasteigna á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Komi í ljós að skráning sé ekki rétt má senda leiðréttingu á netfangið skraning@borgarbyggd.is.
Fasteignaeigendum er jafnframt bent á að fara yfir og uppfæra brunabótamat. Röng eða ófullnægjandi skráning getur haft áhrif á brunabótamat, tryggingamál, fasteignagjöld og viðskipti með fasteignir.
Það er ávallt á ábyrgð fasteignaeigenda að viðkomandi fasteign sé rétt skráð.
Tengdar fréttir

Umhverfisviðurkenningar – tilnefningar
Umhverfis- og landbúnaðarnefnd veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og fallegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
