
BMX Brós ætla að vera með virkilega skemmtilegt hjólanámskeið fyrir krakka sem eru að ljúka 4-10. bekk. Upphafsstaðsetningin er hjá römpunum við Íþróttamiðstöðina. Námskeiðið verður haldið dagana 6.-7. júlí frá 13:00-16:00.
Muna að taka með hjól, hjálm og nesti. Strákarnir mæta með nokkur auka BMX-hjól svo að allir fá að spreyta sig.
Farið verður yfir grunnatriði þess að læra stökkva, jafnvægisæfingar og sett verður upp skemmtileg þrautabraut. Hjólatúr um Borgarnes er einnig á dagskrá.
Einnig verður farið yfir mikilvægi þess að nota hjálm, hreyfa sig, teygja og borða hollt. Námskeiðið kostar 10.000 kr. og skráning fer fram hér

Boðið er upp á skemmtilegt og frítt sumarnámskeið í frjálsum fyrir nemendur sem voru að ljúka 4.–7. bekk.
Á námskeiðinu verða kenndar undirstöður í frjálsum íþróttum á fjölbreyttan og skemmtilegan hátt.
Þjálfari námskeiðsins er Sigursteinn Ásgeirsson.
Námskeiðið hefst 15. júní og stendur yfir í þrjár vikur, virka daga kl. 15:15–17:15.
Við hvetjum öll ungmenni til að koma og kynna sér frjálsar íþróttir – kannski leynist hér greinin sem þig hefur dreymt um að æfa!
Skráning fer fram hér

Námskeiðið verður haldið milli kl. 08:30 – 12:00 dagana 15.-16. júní.
Á námskeiðinu kynnast krakkarnir klettaklifri og öllu því sem því fylgir, að klifra í klettum, á klifurvegg og jafnvel í trjám.
Skemmtilegt námskeið fyrir krakka sem eru að ljúka 4.-7. bekk og eru tilbúnir að leika úti og hafa gaman.
Leiðbeinandi: Páll Einarsson
Um er að ræða tvö námskeið og kostar hvert um sig 8.000 kr.
Fyrra námskeiðið er 15.-16. júní. Skráning fer fram hér
Seinna námskeiðið er 5.-6 águst. Skráning fer fram hér

Sérsniðið þriggja daga sumarnámskeið fyrir stelpur sem eru að ljúka 5-7. bekk. Lögð er áhersla á að valdefla stelpur, byggja upp sjálfstraust, stuðla að heilbrigði og efla jákvæða líkamsvirðingu. Lagt er upp með að dagskráin mótist af áhugasviði og áherslum stelpnanna.
Uppbyggjandi og styrkjandi námskeið fyrir stelpur sem vilja læra meira um sig og efla. Farið verður í hár og húðumhirðu, söngur og dans, hreyfing og mataræði, Yoga og slökun svo eitthvað sé nefnt.
Staður:íþróttahúsið litli salur og Yoga Mahan Mávakletti 16
Leiðbeinandi: Dagný Pétursdóttir
Verð 10.000 kr
Skráning fer fram hér
Námskeiðið kostar 10.000 kr. og skráning fer fram hér.

Þriggja daga námskeið ( 22,25,26.júní) fyrir krakka sem eru að ljúka 5-7. bekk og finnst gaman að brasa og vera úti í náttúrunni. Laga stíga, klippa greinar, búa til náttúru”leikföng”, rólur, klifurtré, kaðlatré, hoppa í Álatjörn, læra að kveikja eld, róa taugakerfið og hafa gaman, svo eitthvað sé nefnt.
Staður:Einkunnir Tími: 13-15:30
Leiðbeinandi: Dagný Pétursdóttir
Verð 10.000 kr
Skráning fer fram hér

Sumarnámskeið í parkour fyrir krakka sem eru að ljúka 5. – 7. bekk. Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru byrjendur í íþróttinni og lengra komnum.
Á námskeiðinu verður unnið með grunnatriði í parkour eins og vault (hindrunarstökk), jafnvægi og lendingar. Farið verður í gegnum fleiri stökk og hvernig á að hreyfa sig á öruggan hátt í alls kyns umhverfi þar á meðal úti í náttúrunni .
Lögð er áhersla á leikgleði, samvinnu og að styrkja bæði líkama og hugrekki.
Þjálfari námskeiðsins er Sindri Már Einarsson, parkour-þjálfari hjá ÍA. Hann hefur stundað parkour í 13 ár og starfað sem þjálfari hjá ÍA síðan í janúar 2022. Hann leggur áherslu á að skapa jákvætt og öruggt æfingaumhverfi þar sem allir fá að njóta sín.
Aðstoðarþjálfari: Hallur Hrafn
Um er að ræða tvö námskeið og kostar hvert um sig 4000 kr.
Fyrra námskeið 22. -26. júní frá kl 10:00-13:00 – skráning hér
Seinna námskeið er 10.-14. águst.– skráning hér

Sirkusskóli Húlladúllunnar 17.-21. ágúst fyrir krakka sem voru að ljúka 4. bekk og eldri. Nemendur kynnast hinum heillandi heimi sirkuslistanna og læra grunntækni hinna helstu sirkuslista. Á dagskránni eru loftfimleikar, húlla, jafnvægislistir, djöggl, sirkusfimleikar, atriðasmíði, kínverskir snúningsdiskar, kínverskt jójó, sirkusfimleikar, sviðsframkoma, trúðalæti, blómaprik og sköpunargleði.
Námskeiðið er frá 15:30-17:30
Verð 4.000 kr.
Skráning fer fram hér

Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.
Verð er 31.900 kr.
Skráning á námskeið í Borgarnesi 15.-20. júní hér
Skráning á námskeið á Kleppjárnsreykjum 6.-10. júlí hér
