Íslenska gámafélagið sér um sorphirðu í Borgarbyggð og rekur stafsstöð sína á Sólbakka 12, frá og með 1. september tóku gildi breytingar á þjónustu og greiðslufyrirkomulagi á móttökustöðinni ásamt gjaldskrá. Allir fasteignaeigendur í Borgarbyggð sem greiða gjald vegna reksturs gámasvæðis geta sótt rafræn endurvinnslukort fyrir Gámastöðina í Sólbakka.
Endurvinnslukort er sótt á vefslóðina https://borgarkort.is/
Greiðandi fasteignargjalda fyrir íbúða- eða frístundahúsnæði sækir um endurvinnslukortið og getur svo deilt því síðan áfram á aðra. Hægt er að setja kortið upp í fleiri en einn síma. Þannig geta fleiri en einn verið með sama endurvinnslukortið í símanum sínum.
Leigjendur sem ekki eru skráðir fyrir fasteign þurfa að fá endurvinnslukort úthlutað frá eiganda fasteignarinnar. Eigandi fasteignar sækir um endurvinnslukortið og deilir því síðan áfram á leigjanda.
Athugið að setja þarf kortið í rafrænt veski í símanum svo það virki. Þeir aðilar sem ekki eru með rafrænt veski geta prentað út klippikortið og látið skanna kóðann á sorpmóttökustöð.
Kortið virkar þannig að þegar komið er inn á gámasvæðið er kortið skannað, starfsmaður á gámasvæðinu tekur út af kortinu í samræmi við það magn af gjaldskyldum úrgangi sem verið er að losa sig við.
Starfsmaðurinn metur magn og tekur út af kortinu í samræmi við magn gjaldskylds úrgangs. Þegar inneignin klárast er innheimt samkvæmt gjaldskrá. Ekki er hægt að kaupa fleiri klipp.
Einungis er klippt af korti fyrir gjaldskyldum úrgangi. Tekið er á móti ógjaldskyldum úrgangi án þess að klippa af kortinu.
Mikilvægt er að úrgangur sem komið er með á gámasvæði sé flokkaður þar sem mikið af úrgangi er gjaldfrjáls en ef flokkuninni er ábótavant þarf að greiða fyrir allan úrganginn.
Endurvinnslukortið inniheldur ákveðið magn, hvert klipp er 0,25 rúmmetrar (jafngildir einni 240 lítra heimilistunnu).


Endurvinnslukortið inniheldur ákveðið magn, hvert klipp er 0,25 rúmmetrar (jafngildir einni 240 lítra heimilistunnu).
Athugið að setja þarf kortið í rafrænt veski í símanum svo það virki. Þeir aðilar sem ekki eru með rafrænt veski geta prentað út klippikortið og látið skanna kóðann á sorpmóttökustöð. Eftir að endurvinnslukortið hefur verið sótt í síma er hægt að deila því áfram á aðra íbúa húsnæðisins til notkunar. Þannig geta fleiri en einn verið með sama endurvinnslukortið í símanum sínum. Leigjendur sem ekki eru skráðir fyrir fasteign þurfa að fá endurvinnslukort úthlutað frá eiganda fasteignarinnar. Eigandi fasteignar sækir um endurvinnslukortið og deilir því síðan áfram á leigjanda.
Ekki er hægt að flytja inneign milli ára en gefin er út ný inneign á kort ár hvert.
Íslenska gámafélagið rekur stafsstöð sína á Sólbakka 12
Opnunartímar:
Virka daga kl. 14:00- 18:00
Laugardagar kl.10:00- 14:00
Sunnudaga kl. 14:00- 18:00
Símanúmer: 577-5757
Netfang: igf@igf.is
Nánari upplýsingar má finna hér
Fróðleikur
Flokkun og fræðsla
Flokkun heimilisúrgangs
Athugið að flokka og telja þarf flöskur og dósir áður en þeim er skilað.
Nánari upplýsingar má finna á facebook síðu Flöskumóttakan í Borgarnesi
Ekki er í boði að afþakka tunnur. Sótt er um tunnur á þjónustugáttinni.
Pantanir eru gerðar með því að fylla út eyðublaðaform.
Þjónustupantanir skulu berast fyrir klukkan 8:00 á mánudegi
og fer hirðing fram vikulega á tímabilinu 1. maí til 15. nóvember.
Hirðing fer fram á tveggja vikna fresti á tímabilinu 16. nóvember til
30. apríl. Hirðing hefst á mánudagsmorgni, og getur tekið tvo til
þrjá daga að sinna svæðinu öllu á álagstímum.
Umsókn um söfnun dýraleifa fer fram hér
Rúlluplast er sótt heim á sveitabæi og þarf plastið að vera hreint,
laust við annað rusl og pakkað saman í bagga. Á sorphirðudagatali má sjá hvenær plasti er
safnað.