Fræðsluerindi í Borgarnesi um mikilvægi öruggra tengsla í frumbernsku

Fræðsluerindi í Borgarnesi um mikilvægi öruggra tengsla í frumbernsku

Miðvikudaginn 18. mars nk. klukkan 20:00 heldur Jóhanna Jóhannesdóttir, félagsráðgjafi, MA og fjölskylduráðgjafi, fræðsluerindi í sal Grunnskólans í Borgarnesi um mikilvægi öruggra tengsla í frumbernsku. Fyrirlesturinn er sérstaklega ætlaður foreldrum ungra barna, en foreldrar barna á öllum aldri eru þó hjartanlega velkomin.

Mikilvægasta grunnþörf barnsins er að tengjast tilfinningaböndum við foreldra sína. Á þessum tíma er þörfum barnsins fyrir kærleika, öryggi og vernd mætt, án skilyrða í gegnum grunnþarfir barnsins.

Í gegnum tveggja klst fræðsluerindi sem Jóhanna Jóhannesdóttir, félagsráðgjafi, MA og fjölskyldufræðingur leiðir, verða skoðuð hvaða möguleg áhrif það getur haft á líðan og hegðan barns þegar ekki næst að mæta þessum grunnþörfum – á forsendum barnsins, vegna margvíslegra ástæðna.

Skoðað er hvernig hægt er að nálgast barnið af öryggi, út frá þekkingu, með kærleik og viðeigandi mörkum að leiðarljósi með það að markmiði að draga úr þeim einkennum sem barnið sýnir í gegnum hegðun sína sem byggja á öryggisleysi og ótta.

Forvarnarteymi Borgarbyggðar

Dagsetning:

Byrjar: 18.03.2026, 20:00
Endar: 18.03.2026, 21:30

Staðsetning:

Salur Grunnskólans í Borgarnesi