Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar

Vinna við mótun nýrrar þjónustustefnu Borgarbyggðar stendur yfir og lykillinn að því að stefnan verði farsæl er að íbúar taki virkan þátt í ferlinu. Markmiðið er að móta framtíðarsýn um skilvirka, nútímalega og aðgengilega þjónustu sveitarfélagsins sem taki mið af þörfum og væntingum allra íbúa. 

Af þessu tilefni verður efnt til íbúafunda þar sem rætt verður um helstu áherslur, tækifæri til umbóta og hvernig þjónustan getur best stutt við samfélagið. Allir íbúar eru hvattir til að mæta, taka þátt í líflegum umræðum og koma sínum sjónarmiðum á framfæri. 

Dagsetning:

Byrjar: 02.11.2026, 20:00
Endar: 02.11.2026, 21:00

Staðsetning:

Grunnskóli Borgarfjarðar, Kleppjárnsreykjum